Skilmálar við kaup á tímum í golfhermum Golfklúbbs Vestmannaeyjar
- Kaup á tíma í herminum veitir leyfi til að spila í honum. Leyfi þetta er háð því að umgengni við búnað og húsnæði GV sé í lagi en óviðunandi hegðun og umgengni getur varðað frávísun og banni frá golfhermum GV.
- Verðskrá miðast við að sá sem spilar sé meðlimur í GV. Sá sem er ekki meðlimur í GV en óskar eftir spiltíma í herminum verður að fá leyfi og kaupa tímann í golfskálanum.
- Tímar í herminum eru ekki endurgreiddir vegna forfalla.
- Ef hermirinn er ekki tiltækur þegar tími sem hefur verið greiddur kemur getur kaupandi tímans óskað eftir nýjum tíma sem telst þá greiddur.
- Kylfingar eru ábyrgir fyrir því tjóni sem þeir valda við iðkun í golfhermi GV og samþykkir kaupandi tímans að bæta slík tjón sem verða á þeim tíma sem hann leigir herminn. GV tekur enga ábyrgð á meiðslum sem verða við iðkun golfs í herminum.
- Komi til ágreinings um einhver mál tengd notkun golfhermis GV skal leita sátta en í framhaldi leysa málið fyrir Héraðsdómi Suðurlands
Use left/right arrows to navigate the slideshow or swipe left/right if using a mobile device